Skráningarsíða fyrir hópkaupstilboð

 

Hér skráir þú þig í 9D breathwork tíma eftir að þú hefur tryggt þér sæti inná hópkaup - Aðeins 23 pláss laus í hvert ferðalag

Tímarnir eru á Frakkastíg 16, Reykjavík yoga, fimmtudaga kl 20:15. 

 

Þú sérð dagskrána hér að neðan og skráningarform

 

Hlökkum til að sjá þig á dýnunni

3 okt - kl 20:15

 Full Reset

Þetta ferðalag hentar sérstaklega vel fyrir einstaklinga sem finna fyrir þreytu og örmögnun og eru tilbúin að endurnýja tilveru sína og skapa nýtt upphaf. Ferðalagið er athvarf fyrir þá sem glíma við byrðar fortíðaratburða, neikvæðar tilfinningar, dóm gagnvart sjálfum sér eða öðrum. Ferðalagið hjálpar þér að grafa dýpra eftir merkingu og stefnu í lífinu og býður þér uppá tækifæri til að enduruppgötva og kveikja aftur tengsl við þitt sanna sjálf.

Undirbúðu þig fyrir fulla endurstillingu og frelsaðu þig frá byrgðum fortíðar sem koma í veg fyrir vellíðan, gleði og innra frelsi. Þessi ferð styður við þinn innri vöxt og bætir sambandið þitt við þig.

 

 

17 okt - kl 20:15

Abundance

Þetta ferðalag hjálpar þér að yfirstíga hindranir varðandi skort hugsanir um peninga og eigið virði. Ferðalagið hjálpar þér við að tengjast inn á meiri velmegun og kalla inn gnægð (e. Abundance) á öllum sviðum lífsins. Þetta er virkilega valdeflandi ferðalag sem skilur eftir sig mikla jákvæðni, trú á sjálfan sig og ótakmörkuðum möguleikum lífsins.

Losaðu þig undan gömlum forritum og hindrunum sem standa í vegi fyrir velmegun, fjárhagslegum og almennt í lífinu. Þetta ferðalag hjálpar þér að umbreyta hugarfarinu þínu og skapa auðugara líf. Þú kallar það inn sem þú ert og þetta ferðalag styður þig í að tengjast inn á hærra svið til þess að laða að þér tækifæri og það sem þú vilt skapa í þessu lífi, með auknu sjálfstrausti og trú á sjálfa/n þig.

Skráning í tíma - 3 okt

Skráning er bindandi og telst hópkaupsbréfið þitt notað eftir að þú hefur skráð þig í tíman.

Skráning í tíma - 17 okt

Skráning er bindandi og telst hópkaupsbréfið þitt notað eftir að þú hefur skráð þig í tíman.

31 okt - kl 20:15

Reconnecting to the inner child

Grunn trúarkerfin okkar skapast á fyrstu 7 árum lífs okkar. Þó það hafi ekki verið með nein áberandi áföll þá er líklegt að við höfum átt augnablik þar sem okkur fannst við ekki séð, að ekki væri á okkur hlustað eða við ekki elskuð.

Öll erum við með innra barn, saklausa sál litaða af fyrri reynslu, grunnurinn á öllu trúarkerfinu okkar og hegðunarmynstri.

Þessi ferð er kjörin fyrir þá sem vilja tengjast innra barninu sínu og endurskrifa söguna sína og heilað parta innra með sér.  Þessi ferð er djúp og fyrir þá sem eru tilbúnir að skoða þá hluta sjálfsins sem þeir gætu hafa yfirgefið og skilið eftir í skugganum. Þátttakendur munu koma úr ferðinni með tilfinningu um djúpa tengingu við sig, endurnýjað sjónarhorn á sjálfsmynd sína, lífið og dýpri ást til sín.

Hversu tilbúin ertu til þess að heila barnæskuna? 

14 nóv - kl 20:15

Letting go and forgive

Þetta ferðalag er sérstaklega hannað til að styðja einstaklinga sem eru tilbúnir að sleppa takinu, hvort sem það eru erfiðir atburðir úr fortíðinni, gremjutilfinningar eða dómharka til sín eða annarra. Ferðalagið skapar nærandi rými fyrir þá sem vilja finna fyrir dýpri tilgangi og sleppa tökunum á því sem er að halda aftur af þeim í lífinu.

Tengstu sjálfinu þínu, krafti, upplifðu meiri innri frið og ró, og skapaðu rými fyrir eitthvað ennþá betra. Fyrirgefðu öðrum og sjálfum þér og upplifðu frelsið sem því fylgir.

28 nóv - kl 20:15

Transending fear

Öndunarferðin að Yfirstíga Ótta er sérsniðin fyrir einstaklinga sem eru tilbúnir að mæta og yfirstíga kvíða og ótta. Þetta er fullkomin fyrir þá sem vilja upplifa meiri seiglu, og býður þér að umbreyta sambandinu þínu við ótta. Þetta ferðalag hjálpar þér að mæta áskorunum lífsins með meira hugrekki.

Ekki láta óttan stjórna þér og mættu inn í lífið með meira sjálfstraust og kraft. 

Þetta er virkilega valdeflandi ferðalag sem styður þig í að verða allt sem þú getur orðið og fara eftir draumunum þínum. 

 

 

 

Skráning í tíma -  31 okt

Skráning er bindandi og telst hópkaupsbréfið þitt notað eftir að þú hefur skráð þig í tíman.

Skráning í tíma - 14 nóv

Skráning er bindandi og telst hópkaupsbréfið þitt notað eftir að þú hefur skráð þig í tíman.

Skráning í tíma - 28 nóv

Skráning er bindandi og telst hópkaupsbréfið þitt notað eftir að þú hefur skráð þig í tíman.